Monday, March 06, 2006

All you have is kisses...

jæja.. gefst upp á þessum leiðindum hér..

flutt

www.blog.central.is/bergy

er í vinnslu samt..

Wednesday, February 22, 2006

bull og blaður

Framundan!!--

--Föstudagurinn 24. Febrúar
*vísó í World class.. (ætli áfengi verði þar á boðstól? Eða kanski bara Burner og Protein drykkir..)
*Partý með Höllu og Ítalíu genginu hennar.. bellisima!
*Timo Maas (???.. ja maður spyr sig...)

--Laugardagurinn 25. Febrúar
*Dekurdagur ..eim- og jarðvarmabað
*Árshátíðarfönk á launum.. rændir desertar sem rifist er um á bakvið..
*Eftirpartý (???..já máður spyr sig ...)

--Sunnudagurinn 26. Febrúar
*Baka baka baka! (ekki bara bollubakstur heldur afmælisbakstur einnig!)

--Laugardagurinn 4. mars
*kl 11 sharp -óvissuferð.. (sundgleraugu, vaðstígvel, sólgleraugu, sundbolur..) (ooog maður spyr sig)
*kl 19.. fordrykkur á Hótel Sögu í boði banka landsmanna fyrir Fjallsmenn... the annual ball
*þriggja rétta máltíð á sama stað
*tjúttz fram eftir morgni..

...og nú vil ég fá komments... bring it on!

Wednesday, February 15, 2006

Spring is in the air.. and so is the Avian influenza

aJá ég get ekki komist hjá vorlyktinni í loftinu, páskaliljurnar eru komnar yfir 10 cm upp hér að framan og mars ekki genginn í garð. Styttist í páskana og aðgerðina mína, og styttist í próf og öllu heldur sumarinu. Það virðast allir vera í útlandahugleiðingum og mínir kærkomnu kunningjar og vinir margir hverjir búnir að næla sér í flugmiða á fuglaflensuslóðir. Ekki eru nema tvær stökkbreytingar í að heimsfaraldur skelli kanski á, og flensan er mögulega komin til nágrannalands okkar Danmerkur.. Ég heyrði af sumum sem afpantað höfðu spánarferð sökum þessa ógnvekjandi sjúkdóms, en mun hún ekki að öllum líkindum heimsækja okkar góðkunna land innan nokkurra mánaða? Farfuglarnir eru nú byrjaðir að láta sjá sig, og auðvitað mun fuglaflensan gera það líka. Vonumst bara til að þessar tilteknu tvær stökkbreytingar sem vantar upp á verði lengur að gerast en haldið er, því ekki er nú nóg til af þessu blessaða bóluefni. En hinsvegar heyrist við hvert götuhorn að fólk ljúgi til að næla sér í þetta eftirsóknarverða bóluefni, en þó þekki ég engan nema ættingja mína í bandaríkjunum sem innlimað hafa þessum bjargvætti. En þó þykir mér áhugavert hver þessi fuglaflensa er, skiptist í nokkrar tegundir, en virkar sem flensa, hálsbólga, beinverkir og hiti.. fann þessar upplýsingar á netinu ef forvitni ykkar um Avion Influenza eins og hún nefnist er til staðar..
http://www.cdc.gov/flu/avian/gen-info/facts.htm

Sunday, February 05, 2006

Special..


ó ljúfa líf, vi'ð Bergný hittuðum townið á föstud og það var bara kynngimagnað... Fyrir utan að keflavík er dauður bær á föstudögum þá bara gáfum við skít í allt og alla og eignuðum okkur dansgólfið.. Frekar spæld að karaoke dæmið hafi verið lokað (vissu þeir að ég ætlaði að koma?) en annars var dj inn nokk góður, spilaði allavena helstu slagarana síðan ég var í 9. bekk.. Palli kallinn söng fyrir mig stuð að eilífu, sem ég vona að verði..

Fékk skammir fyrir myndleysi á þessu bloggi svo ég ætla að skella einni mynd af mér og Kristófer sæta en hann er nýbúin að vera á spítala en er sem betur fer komin heim og að ná góðum bata.. se la vie!

Thursday, February 02, 2006

Sjóðheitar sumarspekuleringar og flensufaraldurinn mikli..

Það er ekki erfitt að láta sig dreyma um spán eða króatíu þegar veðrið er svona skemmtilegt, en auðvitað gerir það löngunina enn meiri að vera fátækur námsmaður og geta hreinlega bara ekki farið.. Mig langar á hróarskeldu, var að skoða áðan á www.studentaferdir.is um miðaverð og hvenær festivalen er.. Rumor has it að Radiohead eigi að koma fram, þó ég hef heyrt þennan nánast ár hvert hef ég smá feeling að það gæti verið smá sannleikur í þetta sinn.. Það yrði án efa önnur tragedía ef Radiohead myndi spila, ég þyrfti að vera á stultum til að lenda ekki sem einhver gólfmotta.. (en dónt misunderstand, yrði náttla hrein snilld að sjá þá!) Ég held sem tónlistarfrík að möst sé að fara amk einu sinni á lífsleið sinni á Roskilde, amk einu sinni, kanski tvisvar.. Hefði viljað fara á Woodstock, sjá Joplin, Doors og Hendrix og fl og fl.. Snilld..
Nú þar sem ég hef góðan rúman klukkutíma þankatíma dag hvern keyrandi í borgina.. fer ég oft yfir skynsemismörk í hugleiðingum.. Fór að pæla í tónlistar-break thru ppl um daginn.. Elvis Presley t.d, og jú auðvitað bítlarnir.. Síðan nirvana (þó ég verði að viðurkenna að ég hafi aldrei náð að tengjast þeim sálarlega.. ólíkt buckley mínum)... Ég myndi telja Björk marka einskonar byrjun á tegund tónlistar.. En hvað mun koma næst? Hvað getur mögulega komið næst? Er einhver tegund tónlistar sem er ekki komin fram? Mér finnst allt vera komið, tölvu, munkar við techno.. kanski trúarlegt-techno? neibb, held það sé komið.. amk er komið kristintrúar ROKK..

Wednesday, January 25, 2006

Kristalgerðir Silisilikata..

ég get ekki sagt að ég sjái eftir ákvörðun minni um jarðfræði, þó vissulega hafi ég fengið gagnrýni fyrir val mitt þá er þetta bara skemmtilegt ! Erfitt engu að síður, en margslungið og áhugavert... Alltof mikið að gerast um þessar mundir, verkefnaskil og próf, en eins og er með mig þarf alltaf allt að vera á fullu til að ég fullnægi útrásarkvarða dagsins.. Dagur minn byrjar sex að morgni og kem ég heim 12-13 tímum síðar og þá bíða bækurnar.. Er komin með algjört ógeð af reykjanesbrautinni og reykjavíkur morgun traffíkinni, leita því að íbúð/herbergi svo ef þið hafið einhverjar hugmyndir..!
En hér við hlið mína bíður hættulegt verkefni til krufningar.. svo það er best að hefjast handa !

svo er fyrsta vísindaferðin á föstudaginn og við Bergný ætlum að kynna okkur starfsemi ÍSTAKS og þiggja þar góðar veitingar .. ;)

Tuesday, January 03, 2006

2006!

líður tíminn! ekki var það nú fyrir löngu að ég spáði mikið í því hvernig heimurinn yrði árið 2000.. vá 2000, hugsaði ég með mér, þá verður sko heimurinn orðinn þróaður! og viti menn, árið er 2006 og ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir miklum breytingum í tæknivæðingu er ég fyrir miklum vonbrigðum. Ég hélt ég slyppi við þvott og þrifnað, vélmenni áttu að sjá fyrir þessu fyrir mig og mína, en nei.. ég er enn að strita og púla við þessi skemmtilegu verkefni..
Jólin voru æði og ég þakka öllum fyrir mig og mína, fékk svo margt og mikið að ég á ekki til orð að lýsa því. Elsku mamma mín fór til Dyflinnar í smá jólaferð, úje, og svo var hún Kristín systir að koma frá Orlando og fékk ég sko velilmandi pakka frá henni.. Ég upplifði frekar sérstök áramót nú í ár, en ég eyddi þeim upp á útsýnisvölum Grandhótels að hella kampavín í glös útlendinga og ríkra íslendinga.. Mikill munur að vera í höfuðborginni hvað ljósdýrðindum (rakettum) varðar, ég og Dejan, Serbneskur þjónn sem er tvífari þjónsins í myndinni Mr. Deeds horfðum upp í himinninn með mikilli gleði og hlógum eins og smábörn, meðan rigndi yfir okkur eldheit glóandi pappírsneflar af sprengjum. Algjört æði.
Annars styttist í skólann, hann mun byrja á mánud eftir komandi helgi og verð ég að viðurkenna að ég hlakka mikið til þess..